4. febrúar 2011

Loksins snjór

Það hlaut að koma að því, snjór í höfuðborginni. Ég hélt nú ekki að ég væri týpan í að óska eftir snjó, en það er bara búið að vera svo dimmt og blautt undanfarið að þetta er ágætistilbreyting. Veit líka að snjór stoppar aldrei lengi við hér á suðvesturhorninu. Vona bara að það verði ekki ófært þegar við systur förum á prjónakaffi.

Engin ummæli:

Related Posts with Thumbnails