Jæja, ég gerði eina tilraun enn með að stífa dúkana utan um skálarnar, nú hafði ég jafnmikið af vatni og sykri eins og E vinkona mín ráðlagði.
Ég mundi líka eftir því að setja plast utan um skálarnar svo þetta myndi nú ekki límast aftur við skálina.
Það var auðvelt að ná skálinni í burtu, auðvitað, en þá voru pokarnir límdir fastir við dúkana. Það var samt ekkert erfitt að ná þeim af en skálarnar aflöguðust aðeins í ferlinu.
En það var sama sagan og áður, þetta lak niður á nokkrum klukkutímum. Þá er bara að ákveða hvort ég ætla að fórna einum dúk og gera þetta aftur með veggfóðurslími.
Sæta spætan og vinkona hennar fengu að skreyta þessar muffins kökur um helgina og svo borða þær auðvitað með bestu lyst.
Og svo er sætan mín búin að læra að hekla stuðla, hún er að hekla teppi fyrir bangsann sem hún saumaði í skólanum. Bangsinn fékk pils og bol sem hún prjónaði. Svoddan handavinnusnillingur þessi elska þó hún sé bara 9 ára og á nú ekki langt að sækja það.






4 ummæli:
hmmmm þar fór í verra....
bjöllurnar mínar eru alveg glerharðar ennþá !!!
okei Nú máttu fara að blogga eitthvað nýtt.
kv. úr neðra
hvaða hvaða, voðaleg óþolinmæði er þetta! Þú veist að góðir hlutir gerast hægt
point taken ;)
Skrifa ummæli