Smá DIY verkefni hérna rétt fyrir páska, ég keypti ódýra leirpotta og tók fram kalklitinn minn, skellti málningarlímbandi á pottana til að afmarka svæðið, málaði eina umferð yfir, lét þorna, skrifaði á með blýanti, setti mold, sáði basil og baunum. Nú bíð ég spennt eftir uppskerunni.
Girnilegu páskaeggin okkar, þarna vantar samt tvö egg nr. 4 sem stelpurnar fengu hjá mágkonu minni fyrir páskana. Sæta spætan fékk fjögur egg, heimasætan fékk þrjú og húsmóðirin eitt, hr. Galinn ákvað að fá sér ekki páskaegg þetta árið en fékk smakk hjá okkur.
Eruð þið ekki að grínast með þennan snjó? Það er allt hvítt eins og á fegurstu jólanótt og á morgun er 1. maí! Ég hélt að það væri óhætt að óska fólki gleðilegs sumars í gær en ég hef beðið með það út af snjóþyngslum en svo var bara allt hvítt í morgun og hefur snjóað stanslaust í allan dag. Þetta er nú alveg orðið gott í bili.


1 ummæli:
jæja nú er maí að verða búinn....blogg takk ;)
Skrifa ummæli