
Við fórum 3 í ljósmyndaferðina á Þingvöll. Við fórum úr sól og blíðu heiman frá mér í hífandi rok og ískulda á Þingvöllum. Ingibjörg var samferða mér og við hittum svo Ástríði við kirkjuna.
Við tókum svolítið af myndum við kirkjuna og fórum síðan í Almannagjá. Þar var Ástríður svo óheppin að rífa vöðva og haltraði það sem eftir var ferðarinnar. Þar sem Ástríður átti í erfiðleikum með að stíga í fótinn var ákveðið að Ingibjörg myndi keyra bílinn hennar heim. Bíllinn bilaði hins vegar á leiðinni þannig að hann var skilinn eftir á Vesturlandsveginum á meðan við Ingibjörg keyrðum Ástríði á slysavarðstofuna.
Þetta var samt mjög skemmtileg ferð þó að haustlitirnir hefðu mátt vera meiri.
1 ummæli:
já þær eru stórhættulegar þessar ljósmyndaferðir, þá er nú betra að húka heima og prjóna, bíllinn í góðu lagi og vöðvarnir virka!!!
Skrifa ummæli