23. janúar 2008

Bjartara framundan :-)

Jæja, bara 2 kennsludagar eftir og svo búið mál með suma. Vona að ég verði ekkert barin á þessum tveimur dögum! Og vona að hann komi ekkert inn til mín nema kannski einn tíma til að kveðja.

Ég fór á fund hjá Fókus félaginu sem IH er í í gær. Það var bara mjög skemmtilegt, hitti meira að segja eina sem ég þekki þar. Hún var besta vinkona mín þegar við vorum krakkar og býr rétt hjá mér núna. Lítið land!

Við Ásta hittumst á fundi í Ljósmyndaklúbbnum okkar í gatinu okkar í morgun. Ég lærði smá nýtt og vonandi hef ég getað sýnt henni eitthvað skemmtilegt.

Ég er allavega glöð eftir daginn.

2 ummæli:

Guðný sagði...

Hvað er Fókus félagið?

Nafnlaus sagði...

Já, ég verð að skella mér í fókus.... og takk fyrir blöðin og diskana.... ég lærði líka heilmikið;)

Related Posts with Thumbnails