Í fyrrasumar keypti ég mér mjög fallega ullarvettlinga á sveitamarkaði í Hvalfjarðarsveit og hugsaði mér gott til glóðarinnar þegar færi að kólna. Í október fórum við í Litla ljósmyndaklúbbnum í fyrstu ljósmyndaferðina, veðrið var "skítkalt" (afsakið orðbragðið) og vettlingarnir góðu auðvitað teknir með og notaðir óspart í ferðinni milli skota. Eins og margir vita varð þessi ferð ansi stutt í annan endann því Ásta reif vöðva í kálfa og við snöruðumst með hana og bilaða bílinn hennar beint á slysó. Þegar ég kom heim uppgötvaði ég að vinstri vettlingurinn var horfinn. Hann liggur sennilega í góðu yfirlæti á þingstaðnum forna. Ég nennti auðvitað ekki austur að leita og ákvað að nota snilligáfu mína í prjónaskap og prjóna bara einn vinstrihandarvettling í stíl við hinn. Brilljant hugmynd fyrir svona brilljant konu eins og mig! Ég fór strax í Hagkaup í Spönginni og verslaði léttlopa í fimm litum og byrjaði þegar heim var komið, nokkur næstu kvöld greip ég í prjónana og þegar ég var kominn framyfir þumalmerkið sá ég mér til mikillar gremju að ég hafði notað of litla prjóna og vettlingurinn var miklu minni en hinn upprunalegi. Þá missti ég auðvitað áhugann hið snarasta og lagði prjónunum þangað til í fyrrakvöld er ég tók þá upp aftur, kláraði þennan hálfa og gerði annan jafnstóran á móti. Svo í gærkvöldi fékk ég mér grófari prjóna í hönd og byrjaði á vettlingnum sem átti að koma í stað þessa sem týndist. Þegar ég var rúmlega hálfnuð með hann sá ég mér til mikillar ánægju að nú var ég með rétta stærð af prjónum. Ég dreif því í því að klára hann (sat til 12:40 í gærkvöldi) og í kvöld faldi ég alla 34 endana á þessum síðasta vettlingi, algjörlega tilbúin að ráðast í þumlana og klára málið. Mér til skelfingar sá ég að nýi vettlingurinn var líka á hægri hönd, ég hefði getað grenjað!!! Nú er stóra spuringin, á ég ekki bara að henda þessum upprunalega og prjóna annan á móti hinum nýja eða á ég að reyna að leggja vettlinginn til þegar ég þvæ hann og gera hann að vinstri vettlingi! Ég meina er það hægt? Er það ekki eins og að reyna að afhomma einhvern?
Ég tók mynd af ósköpunum en myndin vildi ekki hér inn fyrr en í þriðju tilraun, skrítið!!
Ég tók mynd af ósköpunum en myndin vildi ekki hér inn fyrr en í þriðju tilraun, skrítið!!
4 ummæli:
Mér finnst að þú eigir að henda þeim öllum í ruslið sem fyrst, þetta eru greinilega óhappavettlingar og spurning hvort að sökudólgurinn fyrir óhöppum ljósmyndaklúbbsins sé ekki bara fundinn???
Það er verið að testa þolinmæði þína og þrautsegju. Fyrir fornu þingmenn okkar voru oft ærin erfið verkefni sem þeir þurftu að leysa. Ég myndi prjóna hinn vettlinginn og gefa svo hin til einhverra sem þurfa virkilega á þeim að halda. Fall er fararheill.;)
Kveðja, Nína M.
Í Rauða krossinn með vettlingana og hana nú ;)
kv.
e
Þetta er bara fyndið! BARA FYNDIÐ!!!
Mæli með afhommun.....;)
Skrifa ummæli