26. febrúar 2008

þriðjudagur til þrautar

Jæja nú er ég alveg að verða góð eftir veikindin, eiginlega alveg hætt að hósta, engir beinverkir eða hausverkir og næstum ekkert hor. Tók bara viku, vel sloppið!


Ég var að leika mér smá í PS í gærkvöldi og tók fyrir mynd af Þórunni sem var tekin inni í herberginu hennar.




Ég kroppaði hana, notaði sepia tint action, clonaði út gluggakistuna og setti svo áferð á hana og hér er árangurinn.




Ég lenti í alveg stórskemmtilegu símtali við eitt foreldri í dag. Og fékk ennþá skemmtilegra tölvubréf frá öðru í gær. Kemur mér alltaf á óvart hvað sumir þekkja börnin sín illa, eða eru haldnir einhverri meinloku um að það megi ekki skamma börn fyrir óþekkt. Minnti mig á þáttinn með Dr. Martin frá því í síðustu viku. Eða mömmu hans Emils þegar hún sagði við Línu "En hann Emil er góður strákur, mundu það Lína". Hvernig eiga börn að læra muninn á réttu og röngu ef enginn segir neitt?

Þórunn mín er á árshátíð skólans í kvöld. Ég hélt að hún myndi fara í fermingarkjólnum, en nei ekki til að tala um. Hann vill hún nota í fyrsta skipti á fermingunni sjálfri. Hún fór í kjól sem ég keypti á útsölu í Hagkaup þegar hún var 7 ára og kostaði 500 kr. Það er nú ekki hægt að segja að hún sé dýr í rekstri þessi elska.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

flott mynd - er greinilega búin að finna mér súpermyndasmiði í þér og ástu þegar kemur að því að taka tískumyndirnar fyrir búðina ;)
kv.
e

Guðný sagði...

er hún búin að kaupa fermingarkjólinn?? það er ekki mikið verið að sýna manni!!

Nafnlaus sagði...

Flott mynd af Þórunni.:)
Stelpurnar okkar skemmtu sér prýðilega á árshátíðinni í gær, frábært hvað var gaman hjá þeim.

Bestu kveðjur, Nína M :)

Nafnlaus sagði...

Hæ Jóhanna vildi bara hrósa þér með myndirnar þær er mjög flottar. kveðja Þuríður Svava

Related Posts with Thumbnails