14. mars 2008

Boðskortin tilbúin

Jæja þá erum við Þórunn búnar að hanna boðskortin í ferminguna. Við erum báðar voða sáttar við útkomuna, nú er bara eftir að prenta þau út og senda og þá er það afgreitt. Þórunn er búin að gera gestalistann.


Var að heyra frá einum samkennara mínum að Lækjarskóli í Hafnarfirði virðir hvíldartímaákvæði kjarasamningsins.

Var að horfa á fréttirnar áðan, ég óska þessum grunnskólakennara á Seltjarnarnesi til hamingju með niðurstöður dómsins. Mér finnst gott að vita til þess að foreldrar beri ábyrgð á brjálæðisköstum barna sinna, jafnvel þó þau séu veik eins og þessi stúlka er greinilega. Við erum nefnilega að vinna á menntastofnun en ekki sjúkrastofnun. Mér finnst þessi dómur vera smá viðurkenning á því.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Rosalega flott boðskort - hlakka til að ferma á næsta ári - veit hvert ég mæti með myndina af drengnum hehe ;)

Varðandi dóminn þá er samt pínu skrítið hvað upphæðin er í sjálfu sér lítil sem kennarinn fær - ef hún er óvinnufær og um fertugt þá er þetta tittlingaskítur í vasann.....annað sem er líka skrítið og það er að skólinn skuli ekki bera neina ábyrgð sem stofnun því hurðin var í ólagi - ekki það - það er ALDREI neitt í ólagi í skólanum okkar hahaha ;)

kv.
E

frugalin sagði...

Elsku besta, það er nú lítið mál að gera nokkur boðskort, ég hefði bara gaman af því.

Hún er úrskurðuð 20% öryrki en er samt enn frá vinnu, rúmum tveimur árum síðar??? Ég vona bara að þessi dómur standi, verði ekki áfrýjað, því það er ekki eðlilegt hvað er mikið af veikum (lesist: hömlulausum, brjáluðum) börnum í almennum grunnskólum. Það eiga eftir að verða fleiri slys.

Nafnlaus sagði...

Talaði við skólastjóra í einum skóla í Kópavogi í gær og þar er hvíldarákvæðið virt - enda ekki hægt annað því það stendur í SAMNINGUM. Skólastjórinn sagði að þetta er ekki eitthvað sem við þurfum að kanna. Bara beint í félagið með þetta eða menntasvið og fá þetta "borgað".
Kv.
E

Related Posts with Thumbnails