4. mars 2008

Skemmtilegt bréf ... eða þannig

Sælir skólastjórnendur
Mér hafa borist fyrirspurnir vegna þess að þeir kennarar sem eru á fyrirframgreiddum launum fengu ekki launaflokkshækkun 1. mars. Menntasviði var ekki kunnugt um þá ákvörðun að fresta útborgun launahækkunarinnar. Skýring mannauðsskrifstofu ráðhússins er eftirfarandi: Í launakerfinu er ekki hægt að aðgreina launaflokk vegna fyrirframgreiddra launa og eftirágreiddra launa (yfirvinna og aðrar aukagreiðslur) í sömu útborgun. Leiðréttingin kemur því til framkvæmda um næstu mánaðamót 1. apríl. Fyrirframgreidd mánaðalaun fyrir mars verða þá leiðrétt afturvirkt frá 1. mars.
Bestu kveðjur
Valgerður Janusdóttir,
starfsmannastjóri Menntasviði Reykjavíkurborgar
sími: 411 7047
netfang: valgerdur.janusdottir@reykjavik.is

HVAÐ ER Í GANGI? Eigum við að bíða í mánuð eftir launahækkuninni okkar af því að Mannauðsskrifstofan kann ekki á tölvukerfið? Við fengum launahækkun frá 1. janúar sem kom til útborgunar á réttum tíma. Hvað er öðruvísi núna?

1 ummæli:

Guðný sagði...

andskotans aumingjaskapur og lélegar afsakanir!!!!

Related Posts with Thumbnails