Ég var að ganga frá pöntun á etsy.com á nýrri tösku frá funky chic design. Þessi er töluvert stærri en hin, hún er nógu stór til að vera fartölvutaska. Hún er með fullt af hólfum.

Svo fyrst ég var að panta á annað borð, tók ég þessa litlu snyrtibuddu með líka.
Þessar tvær kostuðu $90 með sendingarkostnaði (um 7000 kr.) og svo bætist tollafgreiðslugjaldið við sennilega 1500 - 2000 kr.
7 ummæli:
Kúl taska :)
e
Hæ Jóhanna. :)
Flott taska og budda. Samkvæmt genginu þá kostar þetta um 6937kr. Svo kemur vsk ofan á: 6937x1.245: 8632kr. Svo ofan á það kemur tollur:8632x1.1: 9496kr. Kostnaðurinn verður þá hér um: 2559kr.
Ef þú flyttir þetta til þín í gegnum Shopusa þá væru gjöldin mun meiri eða um:7517kr og taskan og buddan myndu kosta þig um:14.461kr!!! Hrikalega dýrt að nota Shopusa!
Bestu kveðjur, Nína M :)
P.s Hvar er búðin hennar Elínar? Er hún á netinu?
www.elina.is
Bergstaðarstræti 13
Til Elínar.
Sæl Elín.
Var að kíkja á síðuna þína með búðina og finnst hún skemmtileg, áhugaverðar vörur hjá þér og ég mun kíkja þangað.:)
Vissiru að nafn sögupersónunar Milly Molly Mandy er raunverulega Millicent Margaret Amanda en hún fékk gælunafnið sitt af því nafnið hennar þótti of langt?
Gaman að þessu. Gangi þér vel með búðina þína.
Kv. Nína M :)
Til Nínu.
Takk Nína mín.
Já ég vissi af gælunafninu hennar Millicent ;).
Alltaf velkomin í dúllubúðina.
Kv.
Elín
Flottar!!
Rosa flottar töskur :) úff hvað ég er léleg í þessum bloggheimi..... rosa mikið fyrir mann að lesa þegar maður kíkjir svona sjaldan :)
knús í kotið frá okkur!!
Skrifa ummæli