11. júlí 2008

Always look on the bright side of life ...

Ég er að reyna að horfa jákvætt á þetta innbrot. Það gengur ágætlega þegar ég hugsa til þess að nú get ég keypt mér Canon 450D (eða jafnvel 40D) þegar við fáum greitt úr tryggingunum, en svo þegar ég er að fara að sofa eða fara út úr húsinu hugsa ég: ætli þeir komi aftur? Og það er mjög óþægileg tilfinning.

Ólöf þarf svolítið að tala um innbrotið, í gærkvöldi bað hún mig að loka glugganum (hún sefur oftast með opinn gluggann), örugglega svo það kæmu ekki þjófar inn um gluggann hennar.

Þórunn er svo spæld yfir tölvunni sinni og iPodinum en ber sig samt vel.

Nýja útlitið á síðunni er í boði www.shabbyprincess.com sem Ariana blogvinkona mín í Ameríku kenndi mér (og öðrum) að nota.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ó sorry!!!!! setti ekki nafnið undir áðan heheheh hélt það kæmi algjör...... Já Jóhanna mín þú ert nú svo ótrúlega jákvæð og hver veit nema þú fáir bara draumavélina í staðinn. ÆÆ Ólöf smeyk, ég er ekkert hissa á því. Gangi ykkur vel með þetta allt saman kveðja Stína Run ;-)

Nafnlaus sagði...

Hahahah fyndið hvað heimurinn er lítill. Sá á blogginu þínu nafn sem ég kannaðist við og viti menn hún Guðmunda ( Gúnna ) er sko náfrænka mín. hehe Við erum þremenningar
Góða nótt Stína Run ;-)

Nafnlaus sagði...

Já heimurinn er lítill. Ég fór í gær á opnun á ljósmyndasýningu hjá Gúnnu, mjög flott sýning hjá henni. Takk fyrir góðar kveðjur Stína mín.
J

Nafnlaus sagði...

Mikið þykir mér leiðinlegt að heyra þetta. Innbrot eru slæm og alltaf leiðinlegt að glata hlutunum sínum til einhverra púka sem vilja ekki vinna sér inn fyrir hlutum, heldur stela þeim..

Vonandi ná tryggingarnar yfir þetta mín kæra!
Eigðu annars góðan sunnudag, og munið eftir því að læsa húsinu þegar enginn er heima!

Nafnlaus sagði...

Sæl Jóhanna. :)
Ég vona svo sannarlega að bölv.... skúrkarnir náist sem fyrst! Ætli þeir séu sömu og fóru inn til Guðrúnar hans Einars(son Begga) eins og ég sagði þér frá um daginn? Málið gengur hægt þar, litlar vísbendingar annað en að þeir litu út eins og smiðir sem væru að vinna í húsinu.:/
Maður veit aldrei hver er næstur.

Bestu kveðjur og vona að þið séuð að jafna ykkur á þessu.
Kv. Nína :)

Related Posts with Thumbnails