26. febrúar 2011
Líkanið fína
Heimasætan og vinir hennar hafa hertekið bílskúrinn undanfarna daga til að smíða líkan af þorpinu í leikritinu Beatlejuice. Hún er sem sagt í leikfélaginu líka, eins og það sé ekki nóg að vera á fyrsta ári í menntó, í kór og píanótímum ásamt því að eiga u.þ.b. sautjánhundruðogsúrkál vini sem þurfa sinn tíma að ég tali nú ekki um kærastann. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt verkefni hjá þeim, þær eru alveg búnar að brillera í þessu og hafa stjórnað þessu alveg sjálfar þó að við foreldrarnir höfum hjálpað örlítið til, aðallega með því að framkvæma skipanir eins fljótt og auðið er.
kl.
22:52
Merkimiðar:
Fjölskyldan,
Krúttlegt,
snilld
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Dugleg stelpa heimasætan :) Setti hún líka í uppþvottavélina og ryksugaði og svona ;)
Vildi óska að bílskúrinn minn væri líka svona "hreinn" fyrir dóti - hann er fullur af óþarfa .......
kv. úr neðri byggðum
ég held hún viti ekki hvar uppþvottavélin er ;)
Bílskúrinn er svona hreinn af því að þær voru nýbúnar að sópa, venjulega er allt í drasli þarna.
Skrifa ummæli