9. nóvember 2007

Þarf frið og ró

Ég kom heim um hálf sjö eftir langan fund hjá trúnaðarmönnum. Þá var Ásta í heimsókn og Sandra með Birtu. Frábært að hitta þær mæðgur, allt of langt síðan síðast.


Ásta, Ólöf og Birta voru með fimleikaæfingar á stofugólfinu, Þórunn talaði og talaði við mig, ég var að reyna að klára vinnudaginn, með því að svara tölvupósti og senda ástundunina. Mamman hennar Ástu kom og sótti hana .... úff of mikið áreiti.


Vonandi verður helgin róleg. Þórunn verður ekki heima næstu daga vegna Skrekks, stífar æfingar framundan og undanúrslit á þriðjudagskvöldið.


Kannski nota ég bara helgina til að fara út og ljósmynda. Ég er búin að vera svo ódugleg við það undanfarið. Við Guðný getum kannski farið saman og æft okkur. Þetta er mynd sem ég tók á myndavélina hennar Þórunnar í Budapest.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er nú orðin fótafær, þannig að ljósmyndferð er kannski áætluð á næstunni........;)

frugalin sagði...

já hvernig væri að við færum að skella okkur aftur?

Nafnlaus sagði...

kannski ég ætti að skella mér með ykkur og lærbrotna svo ég þurfi ekki að kenna meira næstu mánuði múahahhahahaha ;)

Related Posts with Thumbnails