Við Ólöf fórum í IKEA áðan, ohhh nú getur jólaundirbúningurinn hafist á mínu heimili. Ég keypti jólapappír o.fl. skemmtilegt.
Næst á dagskrá er svo jólasmákökur, ég er að vísu búin að "baka" eina sort, sort sem ég "baka" alltaf fyrir jólin en það eru kókostopparnir frá Karen Wolf í Bónus, mmmm svo góðir og fljótlegir í bakstri.
Svo þarf að fara að spá í jólagjafirnar, ég er nú eiginlega búin að finna erfiðustu gjafirnar sem eru til systkina okkar Sigga, á bara aðeins eftir að skoða það nánar.
Svo eru það jólaseríurnar, þarf að koma þeim upp fljótlega.
2 ummæli:
alveg skelfilega erfitt að velja gjafir handa systkinunum alltaf hreint - endilega laumaðu að mér hugmyndum á kennarastofunni :)
Ég á 6 systkini!!!!!
Hættið þessu væli!
Skrifa ummæli