14. desember: Fór með bekkinn minn í bæjarferð í dag. Við höfum verið að læra um byggingar í Reykjavík og sögu þeirra síðan um miðjan nóvember og lokaatriðið í fræðslunni var að fara með strætó niður í bæ og skoða augliti til auglitis þessar byggingar. Ferðin gekk vonum framar en ég var með úrvalsaðstoðarfólk með mér enda engin leið að fara ein með þetta lið í bæinn.
Álfaleikurinn í vinnunni endaði í dag og ég var orðin alveg viss hver væri hrekkjuálfurinn minn og það kom svo auðvitað í ljós að ég hafði rétt fyrir mér (en ekki hvað?) Álfurinn minn vissi af fælni minni á fjólubláan lit og notfærði sér það óspart, gaf mér fjólubláar jólakúlur, fjólubláan Tópas, fjólublátt naglalakk og á meðan ég var í bænum í morgun litaði hún (eða hjálparálfarnir hennar) alla töfluna hjá mér fjólubláa og stráði fjólubláum pallíettum á kennaraborðið mitt.

2 ummæli:
Jebbs - ég hefði líka gengið alla leið í fjólubláa litnum eins og Ásta ef ég hefði fengið þig sem vin hihi.
Takk fyrir frábæran hitting sl. laugardag :). Er að vandræðast með smá varðandi það sem við ræddum, þ.e. varðandi flutning til og frá staðnum ;). Tek ákvörðun í dag eða á morgun og þá kýlum við á þetta Frú Galin.
Jólaknúsar (og já ég les hjá þér á hverjum degi en finnst svo asnalegt að vera sú eina sem skilur eftir skilaboð á hverjum degi hahahaha)
ég sé á "stats" hjá mér að það eru um 30 heimsóknir á dag. Ég er glöð að þú nennir að skrifa komment.
Bíð spennt eftir niðurstöðu.
Skrifa ummæli