18. desember 2011

Óveður

18. desember: Nú ÞARF ég að fara að klára jólagjafakaupin, ótrúlega margar gjafir sem ég á eftir að finna.
Við fórum yfir heiðina í morgun til að sækja sætu spætuna sem hafði fengið leyfi til að gista hjá bestu frænku. Veðrið var nú ekkert að leika við okkur, mikill skafrenningur mest alla leið, heldur verra á leiðinni til baka en austur.
Á meðan minnsta skyggnið var þurftum við að keyra á 30 km/klst. Ekki mínar uppáhaldsaðstæður, verð að segja það.

1 ummæli:

e sagði...

úff eins gott að ég var ekki með í bílnum - hefði farið yfir um af veðuráhyggjum....þoli ekki svona veður

Related Posts with Thumbnails